155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:57]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Við erum með verkefni um virðismat starfa lifandi og höfum sett fjármuni nýlega að baki áframhaldandi vinnu sem mun að hluta til vera vistuð hjá Jafnréttisstofu og það sýnir í verki vilja til að greina betur og finna leiðir. En við skulum líka ræða það alveg heiðarlega að þó að þetta sé óumdeilanlega mikilvægt verkefni þá er það ekkert alveg auðleysanlegt og leysist ekki í einu vetfangi. Það sem er ánægjulegt er að leiðrétti launamunurinn skuli vera jafn lítill og hv. þingmaður vekur hér máls á vegna þess að það var ekki alltaf þannig. Það er auðvitað stórkostlegur árangur hjá okkur Íslendingum að hafa komist á þann stað.

Varðandi óleiðrétta launamuninn þá held ég að það sé rétt hjá hv. þingmanni að þetta liggur talsvert í eðli og tegund starfanna og um það snýst nú öll vinnan varðandi virðismat starfa, (Forseti hringir.) að komast á braut með að finna betri lausnir.