fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Fjárheimildir ráðuneytisins samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2025 nemur rúmum 334 milljörðum eða um 21,5% heildarútgjalda ríkissjóðs og aukast um 17,6 milljarða frá fjárlögum yfirstandandi árs. Þetta samsvarar 5,5% hækkun útgjalda á milli ára að teknu tilliti til launa og verðlagsbóta og án launa og verðlagsbóta er 1,4% hækkun á fjárheimildum ráðuneytisins eða um 4 milljarðar. Stærsti hluti útgjalda félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins eru útgjöld vegna tilfærslukerfa og í frumvarpi til fjárlaga 2025 eru útgjöld vegna almannatrygginga, atvinnuleysisbóta og fæðingarorlofs um 291 milljarður. Það er um 87% af útgjöldum ráðuneytisins eða um 19% af heildarútgjöldum ríkissjóðs.
Virðulegi forseti. Við útfærslu á afkomubætandi ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar var í stað flats niðurskurðar hugað sérstaklega að því hvar mætti tímabundið eða varanlega lagfæra fjárheimildir og voru því útgjöld almannatrygginga færð að spá um raunútgjöld í kjölfar skattauppgjörs fyrra árs og það leiddi til lækkunar á útgjöldum bæði til ellilífeyris og til örorku en það hefur hins vegar engin áhrif á réttindi þessara hópa, ég tek það skýrt fram.
Helstu skýringar á hækkunum fjárheimilda á milli ára má rekja til aukinna fjárframlaga vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu sem við samþykktum núna í vor og þannig koma tæplega 4,4 milljarðar til verkefnisins árið 2025, en nýtt kerfi tekur gildi 1. september á næsta ári í samræmi við samþykkt framangreindra laga. Heildarhækkun framlaga vegna breytinga á kerfum örorku og endurhæfingar eru á ársgrunni um 18,1 milljarður kr.
Í tengslum við nýtt örorkulífeyriskerfi er gert ráð fyrir að fjölga enn frekar vinnumarkaðsúrræðum vegna fólks með mismikla starfsgetu og árið 2025 bætast 150 milljónir til að fjármagna fjölgun úrræða en fyrir eru um 450 milljónir til vinnumarkaðsúrræða fyrir fatlað fólk og fólk á örorku, sem komu inn á síðustu tveimur árum. Einnig eru 6,3 milljarða aukin fjárframlög vegna aðgerða ríkisstjórnar til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði sem kemur inn á málefnasvið ráðuneytisins en þann 1. janúar 2025 hækka hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi úr 700 þús. kr. í 800 þús. kr. á mánuði. Það eru aukin framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða í grunnskólum landsins sem kemur í gegnum ráðuneytið og hækkun hámarksgreiðslna úr Ábyrgðasjóði launa úr 850 þús. kr. í 970 þús. kr. þann 1. janúar 2025.
Ég vil fá að nefna, virðulegi forseti, aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk, Gott að eldast, sem er eitt af þeim verkefnum sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála og þingsályktun þess efnis var samþykkt á Alþingi 10. maí í fyrra og er framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar hafin og margar aðgerðir komnar vel á veg. Þingsályktunin er fjármögnuð og í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir árlegu 200 millj. kr. viðbótarframlagi til að standa straum af kostnaði við framkvæmdina á næstu árum.
Í frumvarpinu eru ný verkefni í samræmi við heildarsýn ríkisstjórnar frá því í febrúar á þessu ári í málefnum flóttafólks og innflytjenda og heildarfjárhæð nýrra framlaga nemur 400 milljónum á málefnasviðunum. Aðgerðir ráðuneytis míns lúta að því að auka íslenskukennslu fyrir fullorðna og grípa til aðgerða til að auka inngildingu þessa viðkvæma hóps í íslenskt samfélag. Þá hefur verið ákveðið að hækka almennt frítekjumark ellilífeyris úr 25 þús. kr. á mánuði í 36.400 kr. frá 1. janúar næstkomandi. Hækkunin nemur þeirri hækkun sem hefði orðið ef almenna frítekjumarkið hefði fylgt hækkunum á bótum almannatrygginga frá 2017. Við erum hér því að stíga skref í að bæta kjör eldra fólks og því að það njóti góðs af auknum lífeyrissjóðsréttindum.
Fjárheimildir til vinnumarkaðsmála og atvinnuleysismála lækka um 5,4% á föstu verðlagi sem nemur 2,5 milljörðum og má að mestu rekja til lækkunar á tímabundnu framlagi vegna greiðslu launa vegna rýmingar í Grindavík. Endurmat á útgjöldum til Atvinnuleysistryggingasjóðs er í samræmi við uppfærða þjóðhagsspá með tilliti til breytinga á atvinnuleysi og mannfjölda á vinnufærum aldri. Í forsendum fjárlagafrumvarpsins er gert ráð fyrir að atvinnuleysi á árinu 2025 verði 4,2%.
Í lokin er vert að geta þess að frá og með næstu áramótum munu framlög ríkisins vegna NPA-samninga flytjast til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þau nema 1,3 milljörðum vegna 25% framlags ríkisins. Er það í samræmi við ákvæði laga nr. 125/2022, þar sem fram kemur að sveitarfélög taki alfarið við verkefninu frá og með 1. janúar 2025.