155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:06]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Fyrst vil ég kannski nefna að þessi hluti fjárlaganna heyrir auðvitað undir fjármálaráðuneytið þannig að það er ágætt að þetta samtal fór líka fram við fjármálaráðherra í morgun. Ég tek undir þau orð hæstv. fjármálaráðherra að það verði fundnar leiðir til þess einmitt að hlífa þeim sjóðum sem eru með þyngstu örorkubyrðina. Það er akkúrat sú vinna sem er í gangi og er samtal við lífeyrissjóðina um það eftir því sem ég þekki best. Hv. þingmaður rakti líka ágætlega að þetta er eitthvað sem kom inn í kjarasamninga 2007. Þá var talað um að þetta væri þangað til að breytingar hefðu orðið á kerfi örorkulífeyrisbóta sem við erum loksins að ráðast í núna, sem betur fer. Þetta er því kannski eðlilegt framhald af því, en ég tek undir með hv. þingmanni að við þurfum að horfa sérstaklega til þessara sjóða sem hafa þyngstu örorkubyrðina og það er svo sannarlega verkefnið. Ég vil samt fá að nefna að í heild sinni og með tilkomu VIRK hefur örorkubyrðin minnkað og fleira fólk hefur náð að komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir að hafa fengið þjónustu þeirra og úttekt á VIRK sýnir það. Það hefur nú þegar sparað lífeyrissjóðunum talsverðar fjárhæðir og mikilvægt að taka það með í reikninginn líka. Svo má auðvitað benda á að þetta framlag ríkisins nemur einungis um 0,1% af heildareignum lífeyrissjóðanna. En ég ítreka að ég er sammála því að það beri (Forseti hringir.) að hlífa þeim sjóðum sem bera þyngstu örorkubyrðina.