155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:09]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er í raun ekkert sem bendir til þess að breytingarnar á örorkulífeyriskerfinu sem voru samþykktar hér á síðasta þingi muni draga eitthvað sérstaklega úr muninum á örorkutíðni hjá mismunandi stéttum. Vonandi draga þessar breytingar með tímanum úr örorkutíðni almennt, við skulum vona það, en það er ekkert samhengi á milli þess og tilgangs þessa jöfnunarframlags. Við skulum rifja það upp að þegar því var komið á þá kom það skýrt fram í lögskýringargögnum að ætlunin var að þetta yrði varanlegt framlag.

Annars lýtur þessi umræða hér bara að einföldu stærðfræðidæmi. Hvernig á það að ganga upp, ef hæstv. ráðherra er sammála mér um að það eigi að hlífa þessum verkamannasjóðum, hlífa þessum fimm sjóðum þar sem örorkutíðnin er yfir meðallagi, að lækka framlagið úr 7 milljörðum niður 2,5 milljarða þegar þessir fimm sjóðir njóta 66% af framlaginu (Forseti hringir.) núna á síðasta ári? Þetta gengur ekki upp. Ríkisstjórnin verður að útskýra þetta almennilega (Forseti hringir.) fyrir þingheimi ef við eigum að eiga einhverja vitræna umræðu um þetta.

(Forseti (ÁsF): Ég minni hv. þingmann á að ræðutími er takmarkaður.)