fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Hvað það varðar hvort breytingarnar á örorkulífeyriskerfinu sem við samþykktum í vor muni draga úr örorkutíðni mismunandi hópa þá ber að skoða það að hlutaörorkan sem við kveðum á um í nýjum lögum á einmitt að geta gripið þau sem þurfa t.d. að draga úr atvinnuþátttöku sinni, sem er jákvætt og dregur þar með í heild sinni úr örorkutíðninni þegar til lengri tíma er litið. En auðvitað eigum við líka eftir að sjá hvernig það mun þróast. Að öðru leyti verð ég að vísa til þess sem er í frumvarpinu og til fjármálaráðuneytisins sem fer með þennan málaflokk og væntanlega verður hægt að gefa frekari skýringar inni í nefndinni á þeim útreikningum sem hér liggja að baki.