155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:14]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég átta mig fyllilega á því að þessi 45 eða 46% hækkun er 11.500 kr. á mánuði, 138.000 kr. á ári. Ég er auðvitað mjög ánægður með að við séum að stíga þetta skref, ég vil eiginlega segja loksins, og að við séum að hækka almenna frítekjumarkið. Auðvitað eigum við að stefna að því að hækka það meira. Ég er alveg hjartanlega sammála hv. þingmanni með það, en hér er stigið skref þar sem er einmitt verið að láta ellilífeyrisþega njóta þess að staða lífeyrissjóðanna er góð og að þær greiðslur sem fólk hefur verið að fá úr lífeyrissjóðum á undanförnum árum hafa verið að hækka. Það er líka áhugavert að ef maður skoðar fleiri bótaflokka, heimilisuppbótina, orlofs- og desemberuppbótina, þá hækkar þetta fyrir þau sem eru líka með þá flokka. Ég vil nefna það sérstaklega.

Ég lít á þetta sem við erum að gera hér sem mjög jákvætt skref í rétta átt. Mjög margir ellilífeyrisþegar eru að njóta þessa, sem betur fer, og við þurfum að halda áfram á komandi árum að láta ellilífeyrisþega njóta í meira mæli þeirrar aukningar sem er að verða vegna sterkari lífeyrissjóða og þess að fólk er að fá meira greitt úr lífeyrissjóðum.