155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:16]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Mér fannst þau nú heldur rýr vegna þess að miðað við það sem ríkisstjórnin er að taka í skerðingar og miðað við þær tekjur sem ríkisstjórnin er að fá vegna aukinna tekna almannatryggingaþega þá eru þetta smáaurar sem er verið að skila til baka. Ef við setjum þetta í samhengi, 2,7 milljarða í sambandi við hundrað og eitthvað milljarða, þá eru það bara smáaurar. En á sama tíma á núna í fjárlagafrumvarpinu að hækka hjá almannatryggingaþegum um 3,9% en þeir bæta við 0,4% af því að það var rangt reiknað síðast. Ég spyr hæstv. ráðherra: Er hann viss um að það verði rétt reiknað núna? Hefur ríkisstjórninni nokkurn tímann tekist að reikna verðbólguna rétt? Nú er 6% verðbólga. Hefði nú ekki verið nær að hafa 6% hækkun eins og verðbólgan er núna, bara svona einu sinni til að tryggja það að almannatryggingaþegar fái nú örugglega aðeins meira en ekki minna?