fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Þær almennu hækkanir sem eru að verða um áramótin á almannatryggingunum taka mið af spá Hagstofunnar um hver verðbólgan verði á næsta ári og að teknu tilliti til þess munar sem er á spánni fyrir árið í ár og þess sem lítur út fyrir að verðbólgan verði í ár. Þannig að þegar þetta er lagt saman eru þetta 4,3% og þessi 4,3% eru hærri heldur en þær almennu launahækkanir sem eru að verða á hinum almenna vinnumarkaði. Það er ástæðan fyrir þessari tölu, 4,3%. Ég legg áherslu á að það er hærra en þær hækkanir sem við erum að gera ráð fyrir á almennum vinnumarkaði.