fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Á síðustu árum höfum við eytt ómældum tíma hér í þessum sal að ræða um málefni útlendinga og sérstaklega flóttafólks. Ég hef ítrekað kallað eftir því að við færum dýpra í þá umræðu. Sem betur fer höfum við núna stigið ofboðslega mikilvæg skref í breytingum á þeirri löggjöf er lýtur að því að færa okkur nær því sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í málefni innflytjenda og flóttafólks, þ.e. þjónustuna við þessa aðila og aðlögun eða inngildinguna, hvernig við tryggjum að það fólk sem hingað kemur og vill taka þátt í íslensku samfélagi og hefur fengið leyfi til að vera hér með okkur njóti sambærilegra tækifæra og við sem hér erum fædd.
Það eru góð og falleg markmið sett niður í fjárlögunum um að auka tækifæri flóttafólks til félagslegrar þátttöku og virkni í íslensku og líka að hækka hlutfall flóttafólks sem nýtur þjónustu í samræmdri móttöku. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í það líka hvort við þurfum ekki að útvíkka þetta. Flóttafólk er jú einn hópur sem þarf að taka sérstaklega utan um en við sjáum að hlutfall innflytjenda á Íslandi er mjög hátt og það er algjörlega nauðsynlegt fyrir okkur að tryggja það að allur þessi hópur sé virkur í íslensku samfélagi. Mig langar að beina þeirri spurningu til hæstv. ráðherra hvort þessi markmið þurfi ekki að ná líka utan um innflytjendur. Ég hlakka til að takast á við þau verkefni sem hæstv. ráðherra hefur boðað að koma með inn í þingið þar sem við getum tekið þessa umræðu á dýptina. Við sjáum hvað er að gerast í nágrannalöndunum okkar og við sjáum hvað er að gerast í Evrópu allri og þess vegna er svo mikilvægt að við tökum vel utan um þetta verkefni núna strax og tryggjum það að þeir sem hér búa og hafa leyfi til að vera hér á landi njóti sömu tækifæra og við sem hér erum fædd. Þannig höldum við áfram að byggja upp okkar góða íslenska samfélag.