fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vil bara taka sérstaklega undir það sem hv. þingmaður segir í lok andsvars síns um að innflytjendur þurfi að fá sömu tækifæri í íslensku samfélagi og innfæddir. Ef við skoðum samsetninguna á innflytjendum eru 80% að koma hingað frá EES-svæðinu, 10% í gegnum verndarkerfið og 10% utan EES, fyrst og fremst í gegnum atvinnuleit. Í hópunum innan þessara þriggja hópa sem ég nefni hér er líka mikill fjölbreytileiki og það er það sem við þurfum að ná utan um til þess að geta aðstoðað fólk við að ná rótfestu í samfélaginu þannig að það geti notið íslensks samfélags og alls sem það hefur upp á að bjóða og að samfélagið geti notið krafta þessa fólks. Þar koma skólarnir til í fyrsta lagi og við vitum að við þurfum að setja meiri kraft í að sinna þeim, ekki síst leikskólastiginu þar sem börn eru fyrst og fremst að taka út málþroska. Það skiptir mjög miklu máli að við getum tekið vel utan um þann þátt því að það skilar sér síðan áfram inn í frekara nám barna og síðan þegar það verður fullorðið. Það sama er með íslenskukennslu sem snýr að fullorðnu fólki. Við erum að setja aukið fjármagn í þessa tvo þætti núna á næsta ári. Við erum líka að vinna eftir þingsályktunartillögu menningar- og viðskiptaráðherra sem var samþykkt hér í vor um íslenskuna og ég hyggst koma með bæði stefnumótun sem við höfum lagt mikla vinnu í á undanförnum tveimur áhrifum í haust og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.