fjárlög 2025.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og vil bara brýna bæði hæstv. ráðherra og aðra ráðherra í ríkisstjórninni áfram í þessum málum. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á er þetta málaflokkur sem fer á milli nokkurra ráðuneyta og þess vegna er ofboðslega mikilvægt að það sé vel tekið á því á öllum stöðum og það séu engar glufur sem opnast.
Mig langar jafnframt að spyrja hæstv. ráðherra út í velsældarmarkmiðin okkar. Í fjármálaáætluninni, þar sem sérstaklega var tekið á velsældarmarkmiðunum og -mælikvörðunum, þá vorum við ekki, ef ég man rétt, á nógu góðum stað þegar kom að ungmennum sem eru hvorki í skóla né vinnu. Ég sá í fljótu bragði ekki í fjárlögunum sjálfum að við værum að taka þessa mælikvarða upp og nú man ég ekki nógu vel hvort það var fyrst og fremst hugsað í fjármálaáætlun en ekki í fjárlögunum. En ég vil aftur á móti brýna ríkisstjórnina áfram í því að við notum þessi góðu markmið og mælikvarða sem við höfum sett okkur því að þetta eru mikilvæg mælaborð fyrir okkur til að fylgjast með stöðunni í samfélaginu, ekki bara út frá skýrum hagstjórnarmarkmiðum, sem eru jú mikilvæg, heldur líka félagslegu markmiðunum. (Forseti hringir.) Ef hæstv. ráðherra gæti svarað mér aðeins hvað er að frétta af þessum hópi (Forseti hringir.) sem við þurfum svo sannarlega að halda fast utan um.