155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:24]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Við höfum á þessu kjörtímabili í ráðuneyti mínu sett í gang verkefni sem snúa sérstaklega að þessum hópi, hópi ungmenna frá 18–29 ára aldurs, þar sem bæði VIRK Starfsendurhæfingarsjóður, Vinnumálastofnun og fleiri aðilar koma að málum þar sem við erum að setja sérstaka atvinnulífstengla inn í þessi verkefni til að hjálpa fólki út á vinnumarkaðinn eða í nám. Sama gildir um samning milli Sjúkratrygginga Íslands, heilbrigðisráðuneytisins og Janusar endurhæfingar og VIRK, VIRK er líka inni í því. Það eru svona dæmi um verkefni sem við höfum verið að setja í gang og styðja við. Við þurfum að fylgjast mjög vel með þessari þróun og grípa til aðgerða í samræmi við það hvernig við sjáum þessi mál þróast. (Forseti hringir.) En ég deili áhyggjum hv. þingmanns af þessum málum.