155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:25]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Nokkur atriði: Ég lagði fram breytingartillögu við 1. umræðu fjárlaga sem snýst um þessa klassísku desemberuppbót sem þingið hefur bætt við í eingreiðslu til öryrkja vegna þeirra loforða um að 4 milljarðar ættu að fara í kerfisbreytingar en það náðist ekki að setja alla milljarðana í þær kerfisbreytingar. Króna á móti krónu skerðing var minnkuð og afgangurinn var alltaf notaður í eingreiðslu og gafst aldrei tækifæri til að búa til nýjar kerfisbreytingar úr þeirri upphæð og síðan þá hefur sem sagt verið greidd eingreiðsla. Núna eru komnar kerfisbreytingar en þær taka ekki gildi fyrr en 1. september á næsta ári og þessi breytingartillaga leggur þá alla vega til að þessi sama upphæð verði greidd út sem eingreiðsla fyrir mánuðina janúar til og með ágúst þangað til kerfisbreytingin tekur gildi.

Nú veit ég ekki hvort gert sé ráð fyrir því fyrir árið í ár en mig rámar í að ráðherrar hafa talað um að einmitt þessi eingreiðsla félli niður þegar kerfisbreytingarnar tækju við. Ég sá alla vega ekki gert ráð fyrir þessu fjármagni í fjárlögum 2025 en ég býst við að sjá það bæði í fjárauka 2024 og síðan núna í — eða ég var að leita þeim í fjárlögum fyrir 2025 en sá þau ekki, ef ráðherra gæti kannski leiðrétt það því að fjárlagafrumvarpið er ekki það gagnsætt. Er þessi peningur þarna inni eða þarf að samþykkja þessa breytingartillögu?

Einnig vildi ég spyrja hæstv. ráðherra um hækkanirnar á ýmsum af þessum jöfnunarkerfum. Þær eru nokkrar, sem er bara mjög jákvætt. En ég velti fyrir mér til hvaða viðmiða væri hægt að horfa um raunvirðishækkun þeirra, því að það hækkar oft í rykkjum en ekki á hverju ári. Hversu langt aftur nær hækkunin í raun þegar allt kemur til alls?