155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:27]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Í fyrsta lagi varðandi eingreiðsluna sem hv. þingmaður rekur hér, allt saman kórrétt varðandi það, að ég tel, eins og hv. þingmanni er von og vísa, þá er það auðvitað eitthvað fyrir árið í ár sem við þurfum að skoða í fjáraukalögum eins og við höfum gert á undanförnum árum. Það hefur verið rætt um að það væri eðlilegt að hún félli niður þegar við erum búin að taka kerfisbreytinguna upp en það hefur ekki verið er rætt sérstaklega um þessa fyrstu átta mánuði næsta árs. Ég er ekki búin að sjá tillögu hv. þingmanns hvað það varðar en það er eitthvað sem er áhugaverð hugmynd, áhugaverð tillaga, svo að það sé sagt. Svo má kannski segja að auðvitað er það alltaf ákvörðun þingsins hvort fjáraukinn hafi að geyma eingreiðslu eins og þessa.

Aðeins varðandi raunvirðishækkanir. Ef ég skildi hv. þingmann rétt þá var þingmaðurinn að meina bara almennt vegna tilfærslukerfanna og ég er þeirrar skoðunar að það sé langeðlilegast að hækkanir eins og á frítekjumörkum fylgi hækkunum greiðslu, ef við tökum almannatryggingar sem dæmi. Það er akkúrat ein af breytingunum sem við gerðum í vor þegar við samþykktum breytingar á örorkulífeyriskerfinu, þá samþykktum við að um hver áramót myndu frítekjumörkin hækka með og það á bæði við um örorkuna og líka um ellilífeyri. Mér finnst það hafa verið mjög mikilvæg skref sem við tókum þar. Varðandi einhvers konar úttekt á þessu, ef ég er að skilja hv. þingmann rétt, þá væri áhugavert að ræða betur við þingmanninn í meiri smáatriðum hvernig hann sér það fyrir sér.