fjárlög 2025.
Frú forseti. Já, ég held að það væri áhugavert að sjá, að fjárlaganefnd og velferðarnefnd myndu sjá raunvirðisþróunina á þessum kerfum, tilfærslukerfunum. Annað sem mig langaði til að spyrja hæstv. ráðherra um er varðandi þessa hækkun almannatrygginga upp á 4,3%, þ.e. 3,9% plús 0,4% leiðréttingu í rauninni vegna þess að verðbólgan var hærri. Ég held að 0,4% væru hærri ef það væri horft til launaþróunar ársins en ekki bara verðbólgu ársins. Svo finnst mér þetta undarlegur reikningur, það er gert ráð fyrir 3,9% verðbólgu og miðað við tvöfalda lásinn á að miða við það sem er hærra, verðbólgan eða launaþróunin. Það gert ráð fyrir 4,2% hækkun á launaþróun þannig að 0,4% ættu að leggjast ofan á 4,2% en ekki 3,9% og verða sem sagt 4,6% hækkun en ekki 4,3% hækkun. Er það ekki rétt miðað við lög um almannatryggingar?