155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:31]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa athugasemd sem ég held að þurfi aðeins að ræða jafnvel inni í nefndinni því að ég veit alveg hvert hv. þingmaður fara. Útreikningarnir gera ráð fyrir því, eins og ég rakti í andsvari við hv. þm. Guðmund Inga Kristinsson og hv. þingmaður rakti hér sjálfur, að það eru þessir 3,9% plús 0,4. Það sem er þó mikilvægt líka í þessu og við verðum að hafa í huga er að við erum fyrir ofan þær launahækkanir sem við erum að gera ráð fyrir að verði á almennum vinnumarkaði á næsta ári. En þetta er sjálfsagt eitthvað sem fjárlaganefnd þarf líka að taka aðeins til skoðunar og spyrja aðeins betur út í í meðförum nefndarinnar. Ég myndi halda að það væri skynsamlegt.