155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:32]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég ætla að leyfa mér, þrátt fyrir ágætisyfirferð sem hér átti sér stað af hendi Jóhanns Páls Jóhannssonar og hæstv. vinnumarkaðsráðherra um breytingar á jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóðanna, að fara aðeins áfram með það mál því að mér er málið skylt. Ég var m.a. einn af þeim sem gerði þennan kjarasamning 2006 sem þátttakandi í verkalýðshreyfingunni á þeim tíma. Þetta mál er svo sem ekki alveg nýtt af nálinni. Það kom í ljós þegar var verið að kynna fyrir okkur breytingar á örorkulífeyriskerfinu og það kemur fram í bókinni okkar um fjármálaáætlun frá 2024, á bls. 357, þar stendur:

„Þá er gert ráð fyrir að framlag til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóðanna verði endurskoðað og það svigrúm sem skapast verði nýtt til að styðja við áformaðar breytingar.“

Þarna kemur fram að það eigi að fara að taka af einum til að setja til annars. Ég spyr: Hvernig stendur á því að þessi aðgerð er valin? Ég hélt að þegar búið væri að gera kjarasamning þá stæði hann, það væru þá alla vega einhver sólarlagsákvæði sem myndu gilda og í einhverju samráði við samningsaðila. Þannig að mér finnst þetta skrýtin aðgerð, að það sé verið að gera þetta með þessum hætti. Og eins og hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson benti á eru 66% af þessari tölu, 7 milljörðum sem eru að fara til þeirra sjóða sem hafa þurft að glíma við mikla örorkubyrði, einfaldur útreikningur. Þetta eru 4,6 milljarðar sem þessir sjóðir þurfa á að halda til að eiga fyrir þessari (Forseti hringir.) meiri örorkubyrði en aðrir hafa. Hvers vegna er þá þessi tala ekki 4,6 milljarðar í staðinn fyrir 2,5 milljarðar?