fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hef kannski ekki miklu við að bæta frá svari mínu til hv. þm. Jóhanns Páls Jóhannssonar. Ég vil aftur nefna það að þetta mál er á forræði hæstv. fjármálaráðherra og ég veit að það er samtal í gangi við Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og lífeyrissjóðina um þetta mál. Við erum líka að ræða við þau auðvitað um víxlverkunina á milli örorkugreiðslna ríkisins og örorkugreiðslna frá lífeyrissjóðunum þannig að það er samtal í gangi þarna á milli. En þetta eru áformin eins og þau koma fram í fjárlagafrumvarpinu og markmiðið er að hlífa þeim sjóðum sem hafa þyngstu örorkubyrðina. Eins og ég skil þetta í dag þá er fjármagninu sem er að koma inn núna ekki dreift með þeim hætti að það sé fyrst og fremst að fara til þessara fimm sjóða sem eru með hæstu eða þyngstu örorkubyrðina. Ég held að það sé bara sanngirnismál að beina fjármagninu í þá átt því að þannig náum við því markmiði að reyna að létta undir með þeim.
Ég vil líka nefna það sem ég sagði í svari fyrr í umræðunni að við þurfum líka að horfa til þess að með tilkomu starfsendurhæfingar VIRK þá höfum við náð árangri sem hefur dregið úr örorkubyrði og það hefur komið sér að sjálfsögðu vel líka fyrir lífeyrissjóðina og þeir hafa náð að spara einhverja milljarða sem má alveg rekja til þeirrar starfsemi, sem er jákvætt. Þá má alveg spyrja sig (Forseti hringir.) hversu háa upphæð af þessari jöfnun örorkubyrði sé eðlilegt að ríkið setji þarna inn.