fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. VIRK er líka afkvæmi verkalýðshreyfingarinnar og var stofnuð af þeim á sínum tíma. Það sem ég skil ekki er að ef 66% renna til sjóða sem hafa mikla örorkubyrði, hvers vegna er þá talan 2,5 milljarðar? Ég vísa því til föðurhúsanna að þetta sé á forræði fjármálaráðherra, að vinnumarkaðsráðherra skuli vísa þessu máli frá sér og segja að þetta sé bara á borði annarra. Vinnumarkaðsráðherrann hefur samskipti við launþegahreyfingar landsins. Það er hann sem ber ábyrgð á samskiptum við launþegahreyfinguna og samkvæmt mínum upplýsingum í dag fæ ég ekki séð að eitthvert sérstakt samráð hafi verið haft við launþegahreyfinguna um þessar breytingar. Alla vega hef ég ekki orðið var við það og ekki heldur í samtölum mínum við þá sem ég talaði við í dag. Mér finnst það skrýtin aðgerð (Forseti hringir.) að það sé verið að taka eitthvað sem sett var inn í kjarasamninga á sínum tíma og það er bara gert með einu pennastriki.