fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég er einfaldlega að vísa til þess að þessi málaflokkur, þetta málefnasvið, heyrir undir fjármálaráðherra í fjárlögunum. Þannig er það bara og þess vegna er málið á forræði hans. Fjármálaráðherra ræðir við aðila vinnumarkaðarins líka rétt, eins og vinnumarkaðsráðherra. Það er alveg augljóst. Þannig að ég er ekki að vísa málinu frá mér. Ég sit í sömu ríkisstjórn og hæstv. fjármálaráðherra Ég stend að þessu fjárlagafrumvarpi líkt og hann en samtalið er leitt af fjármála- og efnahagsráðuneytinu, eðlilega, vegna þess að undir það heyrir málaflokkurinn samkvæmt skiptingu stjórnarmálefna. Auðvitað eigum við aðild að þessu samtali, að sjálfsögðu, þannig að ég er ekki að reyna að skorast undan ábyrgð ef það er það sem hv. þingmaður heldur fram, heldur er ég einfaldlega að segja hvar málið er hýst.