155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:39]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Herra forseti. Ég hef áður rætt þetta mál við hæstv. ráðherra og ætla að ítreka það hér en það varðar skerðingar á lífeyrisgreiðslum ellilífeyrisþega sem samkvæmt minnisblaði skrifstofu þingsins til velferðarnefndar á síðasta vori er ekki mjög skýr lagaheimild fyrir. Lífeyrissjóðsgreiðslur, samkvæmt laganna bókstaf, virðast eiga að vera atvinnutekjur og þar af leiðandi falla undir frítekjumark atvinnutekna en gera það ekki í framkvæmd laga. Ég hef vakið athygli á þessu núna nokkrum sinnum hérna í andsvörum ráðherra. Mig langaði til þess að velta því upp með ráðherra hvort hann hafi skoðað þetta mál nánar. Þingið hefur skoðað þetta mál nánar og leggur til að lögin séu gerð skýrari því að þau séu einmitt óskýr, sem er mjög varlega orðað. En hefur ráðherra skoðað málið eitthvað síðan ég spurði hann síðast?