fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Við höfum skoðað þetta í ráðuneytinu og einmitt fengið fyrirspurnir frá hv. þingmanni um þetta. Það hefur verið niðurstaða lögfræðinga ráðuneytisins að lífeyrisgreiðslurnar samkvæmt lögum um almannatryggingar séu ekki atvinnugreiðslur. Þetta hefur þó verið til skoðunar í ráðuneytinu varðandi breytingar sem hv. þingmaður fjallaði um hér á síðasta þingi, ef ég man rétt, og nú verð ég að viðurkenna að ég man ekki hvernig það mál endaði, ég veit að hv. þingmaður getur örugglega hjálpað mér að muna þetta. En það var eitthvað sem við tókum líka til skoðunar og ég man ekki hvort það var klárað í fyrra eða ekki en hv. þingmaður getur kannski varpað skýrara ljósi á það í seinna andsvari. En þetta hefur verið niðurstaða ráðuneytisins og ég held að það sé í sjálfu sér ekki mikið meira um það að segja.