155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:42]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Nei, það var ekkert gert í þessu. Það er enn þá ákveðin óvissa í lögunum og það er mjög skýrt að mínu mati. Það er ekki fræðilegur séns að hægt sé að lesa út úr lögunum að lífeyrissjóðsgreiðslur, sem almennt teljast sem atvinnutekjur samkvæmt lögum um tekjuskatt, séu undanþegnar þeirri flokkun í lögum um almannatryggingar. Það er einfaldlega ekkert í þeim lögum sem gerir þá kröfu. Það er hins vegar mjög augljóst, miðað við lagabreytingarnar sem gerðust árið 2016, hvernig þau mistök urðu að fella burt lífeyrissjóðsgreiðslur sem atvinnutekjur. Þau mistök voru gerð þegar örorkulífeyrisþegar vildu ekki vera með í kerfisbreytingunum sem voru gerðar 2016. Þá þurfti að skipta út ákveðinni lagagrein þar sem undanþáguheimildin var til staðar og nú á hún ekki við ellilífeyri og hefur ekki átt við ellilífeyrinn síðan 2016. (Forseti hringir.) Þetta er rosalega skýrt ef maður skoðar söguna og ef maður skoðar lögin (Forseti hringir.) eins og þau eru skrifuð í dag og minnisblað skrifstofunnar bendir einfaldlega á þetta, að þetta sé óskýrt.