155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:44]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Mig langar í minni seinni atrennu hér, af því að hæstv. ráðherra minntist á nauðsyn inngildingar erlendra íbúa þessa lands sem eru 70.000, 80.000 manns þessa dagana, ekki bara hælisleitendur og flóttamenn heldur erlent vinnuafl sem hefur komið hingað til þess að hjálpa okkur að reka þetta sveitarfélag með sómasamlegum hætti — við vitum að þessir hópar eru að sinna störfum sem eru algjörlega bráðnauðsynleg í okkar samfélagi en fólk á erfitt með íslenskuna. Ég hlustaði einhvern tímann á viðtal við hæstv. ráðherra þar sem hann nefndi m.a. að við þyrftum með einhverjum hætti að gera það auðveldara fyrir erlenda íbúa að fara í íslenskunám og mig langar að biðja hæstv. ráðherra að fara aðeins yfir það með hvaða hætti hann teldi að slíkt nám ætti að fara fram. Við vitum það að eftir langan vinnudag getur verið erfitt, og flestir eiga líka bara erfitt með að fara í nám að kvöldi til þegar það þarf að hugsa um heimilið og börnin og fólk gerir þetta þá bara ekki, að mennta sig í öðru tungumáli. Fyrir utan það erum við með marga vinnustaði sem velja það að tala bara ensku. Ég þekki það sjálfur af mínum störfum að uppi í flugstöð er heilu deildirnar þar sem er bara töluð enska. Þetta er ekki góð þróun og við þyrftum með einhverjum hætti að snúa þessu við. Ef hæstv. ráðherra gæti gert okkur grein fyrir hans hugmyndum um það hvernig slíkt nám gæti farið fram.