fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Í fyrsta lagi langar mig að nefna að ég fékk Efnahags- og framfarastofnunina, OECD, til að gera úttekt á málefnum innflytjenda sem var síðan birt í síðustu viku. Þau eru búin að vera að vinna að þessu í bráðum tvö ár. Þetta var hugsað sem hluti af stefnumótunarvinnu sem hefur verið í ráðuneytinu yfir þennan sama tíma og mun skila sér í stefnu til 15 ára og framkvæmdaáætlun til fjögurra eða fimm ára og ég hyggst koma fram með það núna í nóvember.
Þetta er líka að skila sér í því að við höfum verið að vinna að nýjum lögum, frumvarpi til heildarlaga um málefni innflytjenda, en lögin eru frá árinu 2012. Við erum að mínu mati að stíga mjög mikilvæg stefnumótandi skref núna; bæði þessi OECD-skýrsla, stór starfshópur sem heimsótti fólk úti um allt land, sérstaklega innflytjendur, og hefur verið að safna saman upplýsingum og gögnum. Þegar kemur að íslenskunáminu eru nokkrar staðreyndir sem kalla á mann, sérstaklega varðandi íslenskunám fyrir fullorðna. Við erum miðað við nágrannaríki okkar að setja mun minna fjármagn til þess málaflokks. Við erum vissulega að auka það á næsta ári, höfum verið að auka það svolítið á undanförnum árum, en þarna er alveg augljóst að við þurfum að gera betur. Að mínu mati þarf sterkari lagaramma utan um það, bæði skyldur hins opinbera til að veita námið og rétt innflytjandans til að fá íslenskukennslu. Þetta er algerlega í grunninn það sem lögin þurfa að taka á og síðan er auðvitað mjög margt (Forseti hringir.) sem ég get kannski komið inn á í síðara svari, sem snýr auðvitað að því að fólk hafi tækifæri á að (Forseti hringir.) vinna á vinnutíma, hvernig við getum mætt því betur, dregið úr kostnaðarþátttöku (Forseti hringir.) og fleiri atriði sem ég leyfi mér kannski að koma inn á hér á eftir.