fjárlög 2025.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég gleðst auðvitað yfir þessu. Við þurfum á þessari inngildingu að halda og forsendan fyrir góðri inngildingu er vald á því tungumáli sem er talað í því landi þar sem viðkomandi dvelst. Stéttarfélögin hafa lengi vel verið að niðurgreiða íslenskunám fyrir erlenda félagsmenn og mörg af miklum myndarskap. Það er bara spurning hvort þetta sé ekki eitthvað sem þyrfti að koma inn í kjarasamninga, heimildir til að fara í nám á vinnutíma. Hver ætti þá að borga vinnutapið sem af því hlýst? Eða er hægt að skylda bara fyrirtæki sem eru að sækja sér erlent vinnuafl til að takast þessar skyldur á herðar? Eins hæstv. ráðherra nefnir hér væri ekki slæmt ef ríkisvaldið tæki aukinn þátt í því að styðja við þessa hópa því að við sjáum bara núna þessa skautun sem er að verða í samfélaginu. (Forseti hringir.) Fólk er að rekast á og við þurfum með einhverjum hætti að ná utan um þetta (Forseti hringir.) til þess að við getum haldið áfram að lifa hér í sátt og samlyndi.