fjárlög 2025.
Hæstv. forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni og mér finnst vera ákveðið grundvallaratriði að það sé eðlilegt að fyrirtæki sem eru að fá fólk í vinnu, innflytjendur sem koma sérstaklega til að vinna og eru að halda uppi hér bæði hagvexti og lífsskilyrðum og lífsgæðum í landinu, komi til móts við þá starfsmenn sína og taki þátt í þeim kostnaði sem eðlilega hlýst af því að bjóða upp á íslenskunám. Ég nefndi hérna aðeins áðan starfstengt nám. Við höfum verið að setja aukið fjármagn inn í það og við erum líka að reyna að gera námið praktískara eða bjóða upp á praktískara nám. Svo eru það líka einfaldlega gæði náms og þar erum við að horfa til þess að við séum að fylgja þeim stöðlum sem eru í evrópska tungumálarammanum, að við séum að reyna að styðja meira (Forseti hringir.) við menntun kennara til að kenna íslensku sem annað mál. (Forseti hringir.) Þannig að það eru fjölmargar aðgerðir sem eru á teikniborðinu, byrjað að vinna að sumum þeirra, (Forseti hringir.) og ég vonast til þess að við horfum á betri tíð í þessum efnum.