fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég mun nú fara yfir þau málefni sem heyra undir dómsmálaráðuneytið sem ber ábyrgð á dómstólum, almanna- og réttaröryggi og réttindum einstaklinga. Hluti þessara málefna heyrir einnig undir önnur ráðuneyti, svo sem forsætisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.
Fjárlögin fyrir árið 2025 miða að því að styrkja lykilstofnanir eins og lögregluna, Landhelgisgæsluna og almannavarnir ásamt því að stuðla að stafrænum lausnum til að auka hagkvæmni. Heildarútgjöld ráðuneytisins fyrir árið 2025 eru áætluð rétt tæpir 76 milljarðar kr. með um 1,5% hækkun að raunvirði.
Málefnasvið dómstóla nær yfir alla dómstóla landsins, þ.e. héraðsdómstóla, Landsrétt og Hæstarétt, auk dómstólasýslunnar. Heildarútgjöld dómstólanna fyrir árið 2025 eru áætluð tæpir 4,3 milljarðar og þrátt fyrir sértækar aðhaldsaðgerðir er gert ráð fyrir 5,7% hækkun vegna almennra launa- og verðlagsbreytinga. Áfram verður unnið að stafrænum lausnum til að bæta málsmeðferð og auka hagkvæmni, auk þess sem lögð verður fram tillaga um sameiningu héraðsdómstólanna til að auka skilvirkni.
Heildargjöld til almanna- og réttaröryggis fyrir árið 2025 eru áætluð rúmir 43,5 milljarðar kr. með 1,6% hækkun. Af þessu er 700 milljónum varið til að styrkja starfsemi Landhelgisgæslunnar auk 240 milljóna til að bæta fyrir fyrri aðhaldskröfur. Bygging nýs öryggisfangelsis á Stóra-Hrauni, sem kostar rúma 14 milljarða, er einnig mikilvægur liður. Sérstök áhersla er lögð á að efla almannavarnir og mæta nýjum Schengen-kröfum, þ.m.t. auknum framlögum til landamæragæslu. Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar leggur áherslu á skilvirka löggæslu um land allt og að mönnun lögreglunnar sé í takt við þarfir samfélagsins.
Löggæslan verður áfram undanskilin aðhaldskröfu og lögð er áhersla á að styrkja löggæslu á landsbyggðinni. Við höfum einnig sett fjármagn til að takast á við skipulagða glæpastarfsemi, auk þess sem aukið ofbeldi og vopnaburður meðal ungmenna kallar á samstilltar aðgerðir.
Landhelgisgæslan gegnir lykilhlutverki í öryggis- og björgunaraðgerðum landsins og hefur reynst ómetanleg í margvíslegum áföllum sem þjóðin hefur staðið frammi fyrir. Til viðbótar hefðbundnu rekstrarfé þarf að gera ráð fyrir viðbótarfjárfestingum og viðhaldskostnaði eins og viðgerðum á TF-SIF og endurnýjun þyrluleigusamninga.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á að stytta boðunarlista í fangelsum og bæta innviði fullnustukerfisins. Bygging nýs öryggisfangelsis á Stóra-Hrauni er hluti af þessari stefnu ásamt því að um 340 millj. kr. verður varið til að bæta afplánunarrými á Sogni. Markmiðið er að stytta boðunarlista og auka skilvirkni í fangelsismálum.
Á málefnasviði réttinda einstaklinga, trúmála og stjórnsýslu eru heildarútgjöldin árið 2025 áætluð rúmir 28 milljarðar kr. með 1,5% hækkun að raunvirði. Sérstök áhersla verður lögð á stafræna þróun og bætta þjónustu við borgara. Einnig verður unnið að umbótum á starfsemi sýslumannsembætta með það að markmiði að auka hagkvæmni og bæta þjónustu.
Í útlendingamálum er lögð áhersla á skilvirkt og mannúðlegt kerfi til að stytta málsmeðferðartíma og fækka umsóknum um alþjóðlega vernd. Breytingar á lögum hafa leitt til 54% fækkunar umsókna á þessu ári miðað við fyrra ár en enn er unnið að því að stytta málsmeðferðartíma og styrkja lykilstofnanir. Góður árangur hefur náðst í brottflutningi þeirra sem fá synjun um vernd og áfram verður unnið að því að koma á brottfararúrræðum fyrir þá sem neita samvinnu við stjórnvöld.
Þessi ríkisstjórn hefur á þessu kjörtímabili stóraukið fjárframlög til málefna ráðuneytisins og þá sérstaklega til löggæslumála, auk þess sem aðhaldskrafa hefur verið afnumin. Ráðherra vill þakka þinginu fyrir að sýna málefnum ráðuneytisins skilning og er hér stigið stórt skref í þá átt að tryggja áfram öryggi og réttlæti fyrir alla borgara.