155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:57]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir yfirferð sína á fjárlagafrumvarpinu í dag og þeim þætti sem lýtur að starfsemi dómsmálaráðuneytisins. Það eru ærin verkefni fyrir höndum. Ég held að að mörgu leyti deilum við hæstv. dómsmálaráðherra þeirri sýn sem við höfum á réttaröryggi í landinu en auðvitað verður það að koma í hlut hæstv. ráðherra að forgangsraða þessum fjármunum með þeim hætti að þeir nýtist sem flestum og þar kannski skilur einhvers staðar á milli sýnar okkar.

Við ræddum það í umræðum um fjármálaáætlun í vor að það stæði til að reisa hér svokallað lokað búsetuúrræði, sem nú heitir öðru nafni, og hæstv. ráðherra fór inn á það í yfirferð sinni. Þetta heitir núna lokað brottfararúrræði og tengist innleiðingu á tilskipun í tengslum við skyldur okkar samkvæmt Schengen. Við höfum nú þegar fengið innsýn í þessa löggjöf í gegnum samráðsgátt stjórnvalda þar sem við vitum að meginstefið er að þar verða einstaklingar sviptir frelsi að einhverju leyti og þar munu starfa fangaverðir. Nú vil ég vera alveg skýr með það að ég tel enga ástæðu til þess að bregðast þeim skyldum sem Schengen-samstarfið setur okkur og ætla ekki að ræða þessa löggjöf efnislega en hins vegar vakna stórar spurningar í tengslum við fjármögnun. Fjárlagafrumvarpið nefnir ekkert þetta úrræði per se og það vekur líka athygli mína að fullnustuyfirvöld virðast enn þá sæta aðhaldskröfu. Minni ég á að hæstv. ráðherra fullyrti í vor í umræðu um fjármálaáætlunina að hún yrði felld niður varanlega (Forseti hringir.) á tímabili fjármálaáætlunarinnar til 2029. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvernig verður fjármögnun (Forseti hringir.) þessara verkefna háttað ef lög verða samþykkt og hvers vegna er aðhaldskrafan núna búin að birtast?