155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:02]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vil til áréttingar nefna það að hér var ég ekki að vísa til aðhaldskröfu sem hefur verið tekin af löggæsluyfirvöldum heldur nefni ég hana í sambandi við fullnustukerfin og vísa þar til umræðu sem átti sér stað 22. apríl sl., en nóg um það. Það er auðvitað vont að sjá að það er ekki búið að huga nægilega að fjármögnun þessa úrræðis og ég held að það sé mjög mikilvægt að hafa það á hreinu að ég hef ekki efnislegar forsendur til þess að vefengja að það verði útfært með skynsamlegum hætti í löggjöf þó að það sé auðvitað svigrúm til framfara frá því sem er í samráðsgátt. Ég vil hins vegar nota tækifærið og minnast á að það hefur verið gífurlega erfitt að horfa upp á aðstæður lögregluumdæma hér á landi sem hafa búið við ákaflega lakan kost (Forseti hringir.) í mönnun og þá sérstaklega — og ekkert sérstaklega, ég vil bara (Forseti hringir.) taka sem dæmi lögregluna. Úr því að markmið þessarar fjármálaáætlunar tala um eflingu almennrar löggæslu, hvernig hyggst (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra gera það samkvæmt þeim efnum sem henni eru búin?

(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna þingmenn á að virða ræðutíma.)