fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir yfirferð yfir þá málaflokka sem hún ber ábyrgð á. Ég er þeirrar skoðunar að þau verkefni sem þar heyra undir séu fyrsta hlutverk, fyrsta skylda stjórnvalda. Mig langaði kannski, í kjölfar umræðunnar sem við áttum hérna annars vegar þegar hæstv. dómsmálaráðherra var með þennan málaflokk til umfjöllunar í tengslum við fjármálaáætlun í vor og hins vegar í tengslum við sérstaka umræðu sem ég óskaði eftir um mönnun í lögreglu, að spyrja hana aðeins. Nú liggur það fyrir að það er ekki aðhaldskrafa en við heyrum t.d. Félag yfirlögregluþjóna tala um það að á meðan verið sé að auka mannafla í mjög víða í Evrópu, ekki síst á höfuðborgarsvæðum, vegna nýrra öryggisógna, vegna breyttra aðstæðna, séum við svona að halda í horfinu. Sér dómsmálaráðherra fyrir sér að núverandi mönnun í almennri löggæslu dugi til til að mæta þeirri þörf sem er fyrir hendi og er, held ég, óumdeilt vaxandi?
Síðari spurningin varðar samspil málaflokka milli ráðuneyta. Ýmis barnaverndarúrræði á forræði barnaverndar sveitarfélaganna að einhverju marki, ríkisins að einhverju marki, börn sem eru með fjölþættan vanda — því að við erum hér á þessum skilum barns, ungmennis og fullorðinnar manneskju. Er virkt og aktíft samtal í gangi milli dómsmálaráðherra og barnamálaráðherra hvað varðar utanumhald um þennan málaflokk?