fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svörin og ætla bara að leyfa mér að fá að tala hér sem þingmaður Reykvíkinga: Hugurinn hvað mönnun varðar er ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Þótt vitaskuld sé vandinn um land allt þá er það auðvitað svo að stabbinn af málum sem upp koma í landinu er á höfuðborgarsvæðinu. Hér eru alls konar aðrar skyldur, hér eru öll sendiráð o.s.frv.
Mig langaði líka að spyrja ráðherrann út í stöðu fangelsismála. Þau hef ég rætt við hæstv. ráðherra í allnokkur skipti og þar er ég ekki síst með í huga að Ísland fari að geta staðið jafnfætis systurríkjum okkar á Norðurlöndunum hvað varðar það að við getum staðið í lappirnar með það að við séum að bjóða eitthvað sem heitir betrun í fangelsum, meðferðarúrræði og annað, en ekki síst boðunarlista, að við séum ekki bara í því að beita samfélagsþjónustu vegna stöðu fangelsanna (Forseti hringir.) frekar en út frá hugmyndafræði, hvort einhverjar sérstakar aðgerðir séu í gangi til að stytta boðunarlista.