155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:12]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég ætla að vinda mér beint að efninu. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í þá fjármuni sem er verið að verja til vopnunar íslenskrar lögreglu. Nú hefur komið á daginn að ótti og óöryggi hefur aukist mikið í samfélaginu, m.a. kom fram í fjölmiðlum um daginn samkvæmt ákveðinni úttekt að t.d. er unga fólkið okkar, börnin okkar, að vopnast til þess að verja sig. Nú er það ekki meginhlutverk lögreglunnar að verja almenna borgara gagnvart einhverri utanaðsteðjandi ógn heldur fyrst og fremst í samskiptum hver við annan. Valdbeiting lögreglunnar er því ekki fyrir borgarana gegn einhverju öðru heldur er hún líka gegn borgurum. Það er líklegt og þekkt að þetta ýtir undir ótta og óöryggi hjá almennum borgurum.

Nú var ráðist í gríðarleg vopnakaup í tilefni af einum stærsta leiðtogafundi sem haldinn hefur verið hér á landi með tilheyrandi öryggiskröfum en ekki virðist áhugi fyrir því hjá hæstv. ríkisstjórn að koma þeim fjármunum sem fóru í vopnakaupin, sem eru gríðarlega miklir, til betri nota. Mig langar að byrja á því að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hafi ekki áhyggjur af vopnakapphlaupinu, sem ég held að sé augljóslega farið af stað, og hvort hún telji ekki að þessum miklu fjármunum, tugum ef ekki hundruðum milljóna, sé betur varið í fjölgun lögreglumanna, kaup á þyrlum, flugvélum og búnaði fyrir Landhelgisgæsluna fremur en vopn, sem eru líkleg til þess að auka óöryggi í samfélaginu frekar en hitt.