fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hér var haldinn mjög umfangsmikill leiðtogafundur á síðasta ári. Til þess að halda fund sem þennan þurfti lögreglan að efla sig í viðbragði og þekkingu og keyptur var ýmis búnaður fyrir lögregluna í tilefni af þessum fundi. Ég er sammála hv. þingmanni að við erum að sjá núna ákveðin teikn á lofti um aukið ofbeldi í samfélaginu en ég er alls ekki sammála hv. þingmanni sem segir að það sé ekki hlutverk lögreglu að verja borgara fyrir aðkallandi ógn (ArnG: Utanaðsteðjandi.) — utanaðsteðjandi. Hvernig á að skilgreina utanaðsteðjandi ógn? Það er jú líka hlutverk lögreglu að sinna afbrotavörnum og lögreglan tekur það mjög alvarlega. Við höfum lagt á það áherslu, m.a. með samþykkt á lögreglulögum í vor og það frumvarp varð til þess að styðja lögregluna í afbrotavörnum. Hér er ekkert vopnakapphlaup að eiga sér stað hjá lögreglunni nema síður sé. Lögreglan, með þeim kaupum sem hún hefur gert á búnaði — ég tel það af og frá að það auki óöryggi borgaranna hér á landi. Ég hafna því algjörlega.