155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:16]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég held að hún hafi svarað spurningu minni neitandi sem laut að því hvort hún hefði ekki áhyggjur af þessu vopnakapphlaupi. Er það rétt skilið að hún hafi ekki áhyggjur af því? Þá langar mig bara til að hryggja hæstv. ráðherra með því að þetta er í rauninni ekki eitthvað sem veltur á skoðunum fólks, þetta er eitthvað sem hefur verið sýnt fram á ítrekað í heiminum, í rannsóknum og öðru að aukinn vopnaburður lögreglu eykur vopnaburð afbrotamanna og jafnvel almennra borgara. Ég tel samt sem áður að hæstv. ráðherra hafi svarað spurningunni.

Nú er víða þörf fyrir fjármuni í okkar lögreglukerfi og þegar ég talaði um að það væri ekki verið að vernda borgara gegn utanaðsteðjandi ógn þá átti ég við nákvæmlega það sem ég sagði, það er verið að verja borgarana gegn öðrum borgurum. Lögreglan beitir valdi sínu gegn almennum borgurum. (Forseti hringir.) Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra aftur hvort hún sé ósammála því að það fólk sem beitir ofbeldi séu almennir borgarar líka, (Forseti hringir.) börn t.d., fólk með ýmis vandamál, sem á við félagslega erfiðleika að glíma og annað. (Forseti hringir.) Mig langar að ítreka spurningu mína hvort hún telji ekki að öllum þessum fjármunum sem verið er að verja í vopn, (Forseti hringir.) sem ekki liggur fyrir þörfin á, sé betur varið í búnað (Forseti hringir.) og fjölgun lögreglumanna sem raunverulega eykur öryggi allra (Forseti hringir.) almennra borgara og öryggistilfinningu þeirra.

(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill ítreka það að bæði ráðherrar og þingmenn virði ræðutímann.)