fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og fyrir að koma inn á samfélagslöggæslu. Ég ætla að víkja aðeins að henni í seinni ræðu minni.
Vitað er að samfélagsmiðlar geta verið uppspretta ofbeldis meðal ungmenna og barna. Bæði sjá þau þar athæfi og ofbeldi sem er gert eftirsóknarvert og þau líkja eftir, en einnig er netið virkur vettvangur margvíslegs stafræns ofbeldis. Þá eru mörg dæmi þess að alvarleg ofbeldisatvik hafi verið skipulögð í gegnum samfélagsmiðla eða þeim streymt beint þaðan. Samfélagslögregla er hugmyndafræði og stefna í löggæslu sem leggur áherslu á nauðsyn þess að lögreglumenn byggi upp jákvæð tengsl við samfélagið sem þeir þjóna. Samfélagslögreglan þarf að vera sýnileg í samfélaginu og kannski umfram allt á netinu, þar sem bæði er hægt að sinna fræðslu og forvörnum en einnig ná til barna og ungmenna. Telur hæstv. ráðherra að nóg sé að gert til (Forseti hringir.) að sporna við ofbeldi gegn börnum og meðal barna og hefur lögreglan næg bjargráð til að bregðast við vandanum strax?