fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurningu til mín. Hv. þingmaður nefnir hér og tekur undir það sem ég sagði í fyrra svari mínu um mikilvægi samfélagslöggæslu. Það hefur sýnt sig að samfélagslöggæsla skiptir miklu máli þegar kemur að forvörnum meðal barna og ungmenna. Þess vegna fagna ég því mjög að í þessari viku tilkynnti ríkisstjórnin að lögð yrði rík áhersla á að styrkja lögreglu þegar kemur að forvörnum, viðbragði og meðferð þessara mála og er þá verið að horfa sérstaklega til að fjölga verulega lögreglumönnum sem sinna samfélagslöggæslu. Ég vil líka taka fram um samfélagslöggæsluna, að samfélagið er ekki bara hér á meðal okkar heldur er líka til samfélag sem heitir internetið (Forseti hringir.) og lögreglan þarf að fylgjast með því hvað börnin okkar eru að gera, því að þar eru óprúttnir aðilar sem nálgast þau í gegnum þá miðla og það er ekki ákjósanlegt.