fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið. Eins og ég taldi upp og sagði áðan þá erum við að setja 500 millj. kr. framlag til afgreiðslu umsókna og til að mæta kostnaði við sjálfviljugar heimferðir. Gæti hæstv. ráðherra kannski upplýst þingheim um það hversu mikill kostnaður er á bak við sjálfviljuga heimferð hvers og eins, t.d. sjálfviljuga heimferð einstaklings til Venesúela? Mér skilst að það séu 1.500 einstaklingar sem þurfi að flytja til síns heima, til Venesúela, eftir að við loksins fengum úrskurð kærunefndar útlendingamála í málaflokknum síðasta haust. Þingið samþykkti því miður ekki lagabreytingu sem hefði komið í veg fyrir þessar umsóknir allar. Hver er kostnaðurinn við hvern og einn einstakling og hver er staðan varðandi heimferðirnar? Hvernig gengur þessum 40 starfsmönnum heimferðadeildar ríkislögreglustjóra að fá fólkið heim? Og er ekki markmiðið að fara lengra niður en nú er, 1.271 umsókn? (Forseti hringir.) Telur hæstv. dómsmálaráðherra að nóg sé að gert til að fækka umsóknum? Ég minni á það að árið 2021 voru 875 umsóknir og árið 2015 voru þær 356. (Forseti hringir.) Erum við ekki bara hálfnuð á leiðinni?