fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Er nóg að gert? Það hefur gengið vel á þessu ári og ég vil þakka þinginu sérstaklega fyrir þær lagabreytingar sem hér hafa verið gerðar og ég tel að hafi stuðlað að fækkun umsókna. Þannig var að á fyrstu sjö mánuðum þessa árs voru umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 1.271 en til samanburðar voru þær 2.754 á síðasta ári, sem gerir 54% fækkun umsókna á milli ára. Ég er ekki með á reiðum höndum nákvæman kostnað við sjálfviljuga heimför en hann er umtalsverður. Það eru flugfargjöld og við höfum verið með heimferðarstyrki til þeirra einstaklinga sem þá hafa kosið og eru hugsaðir sem hvatning til þeirra sem eiga að yfirgefa landið.