155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:34]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Nú vil ég fyrst segja hæstv. ráðherra það til vorkunnar að hún tók á mörgum sviðum ekkert við afbragðsbúi. Veikleikum og vanfjármögnun, bæði í löggæslu og landhelgisgæslu, hefur verið leyft að grassera hér á landi og nú er svo komið að við þetta verður einfaldlega ekki unað lengur og ýmislegt bendir til að þetta hreinlega ógni öryggi okkar.

Mig langar í þessari ræðu að beina sjónum að Landhelgisgæslunni. Það er vissulega gert ráð fyrir 940 millj. kr. hækkun í málaflokknum, en annars vegar er þetta 240 millj. kr. tímabundið framlag til eins árs til að vega upp á móti aðhaldi ársins 2024 og hins vegar 700 millj. kr. tímabundið framlag til tveggja ára til að mæta veikleikum í starfsemi Gæslunnar, eins og sagt er í frumvarpi til fjárlaga. Þetta bendir ekki beinlínis til að verið sé að tryggja viðvarandi stöðu þessara mikilvægu stofnunar til langframa. Einhver myndi segja að þetta væri eins og að setja plástur á sárið. Annar myndi kannski segja að það væri verið að tjalda til einnar nætur.

Við lifum á viðsjárverðum tímum og getum ekki reitt okkur eingöngu á margs konar fjölþjóðlegt samstarf á sviði varnar- og öryggismála. Við verðum einfaldlega líka að geta tryggt margs háttar björgun og öryggishlutverk Landhelgisgæslunnar, bæði á sjó og landi. Ég vil því spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvort henni þyki það fullnægjandi sem birtist í fjárlögum og hvort hún telji að veik fjárhagsstaða Landhelgisgæslunnar og stöðug óvissa um rekstrarfjármagn tryggi að hún geti sinnt mikilvægum skyldum sínum, og hvort hér sé um að ræða hreinlega ógn við þjóðaröryggi landsins.