fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og þann áhuga sem hann sýnir Landhelgisgæslu Íslands. Mitt markmið er að standa vörð um Landhelgisgæsluna sem hefur auðvitað löngu sannað gildi sitt þegar við sem samfélag höfum tekist og þurfum að takast á við margvísleg áföll sem skella á með reglubundnum hætti. Í þessum áskorunum hefur Landhelgisgæslan gegnt lykilhlutverki í björgun á landi og sjó og sýnt fumlaus viðbrögð þegar kemur að því að tryggja öryggi í landinu. Þess vegna vil ég svara hv. þingmanni á þá leið að já, Landhelgisgæslan hefur hingað til uppfyllt skyldur sínar til að tryggja öryggi í landinu og í fjármálaáætlun var styrkum stoðum komið undir rekstur Landhelgisgæslunnar til að tryggja að hún geti áfram veitt þá þjónustu sem henni er ætlað að veita. Eins og með allar stofnanir er líka mikilvægt að rýna þessa starfsemi vel og það erum við að gera með það fyrir augum að styrkja og styðja við starfsemi stofnunarinnar en á sama tíma að leita leiða til hagræðingar. Það er verkefni næstu mánaða. Þess vegna fagna ég því viðbótarfjármagni sem fékkst til Gæslunnar til að mæta alvarlegum rekstrarvanda hennar í fjármálaáætlun til næstu tveggja ára. Það er von mín að við nýtum þann tíma vel til þess að fara vel yfir rekstur stofnunarinnar en ekki síður til að tryggja hann til allrar framtíðar. En við þurfum líka að skilgreina þjónustuhlutverk þessarar mikilvægu stofnunar fyrir land og þjóð.