fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka svarið en það hefði kannski mátt svara spurningunni. (Dómsmrh.: …) Það er ekki verið að standa vörð um Landhelgisgæsluna eins og hæstv. ráðherra fullyrðir hér á meðan henni er gert að vera á yfirdráttarheimild ár eftir ár eftir ár. Vissulega erum við sammála um það, ég og hæstv. ráðherra, að hún hefur unnið ótrúleg afrek á sjó og landi. Þess vegna mælist hún með langhæstan stuðning allra stofnana meðal landsmanna ár eftir ár, áratug eftir áratug. Við getum samt ekki horft fram hjá því að á löngum tímabilum hefur flugvélin ekki verið til taks vegna þess að hana þurfti að leigja út til að afla tekna. Okkur vantar aðra þyrlusveit norður í land og ég spyr því aftur og veit að hæstv. ráðherra hefur góðan hug til þessara stofnana. (Forseti hringir.) Ég spyr í hreinskilni: Finnst henni þetta vera nóg sem birtist í fjárlagafrumvarpinu?