155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:40]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður spyr mig hvort þetta sé nóg. Það fer eftir hvernig á það er litið, hv. þingmaður. Þegar þér er falið að reka stofnun, hvort sem er Landhelgisgæsluna eða aðra, þá er búið að ákveða ákveðið þjónustustig og til þess kemur ákveðið fjármagn. Þess vegna, eins og ég sagði í fyrra svari mínu, erum við að fara í vinnu til að meta þá þjónustuþörf sem við viljum. Ég er sammála hv. þingmanni að draumur minn, rétt eins og hans, er að við höfum staðsetta þyrlu norðan heiða sem myndi tryggja mjög öryggi íbúa, sjófarenda, ferðamanna sem og annarra, ekki bara á Norðurlandi heldur einnig á Austurlandi. Til þess þarf aukið fjármagn ef við ætlum að gera það. Til að svara hv. þingmanni þá þyrfti aukið fjármagn til þess að bæta við þá þjónustu sem nú er. (Forseti hringir.) Hugur minn stendur til þess að fara í þá vinnu að skilgreina þjónustuna. Ef við ætlum að veita meiri þjónustu þá þurfum við aukið fé.