155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:41]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Undanfarin misseri hefur verið umræða um fyrirætlanir hæstv. dómsmálaráðherra um svokölluð lokuð búsetuúrræði fyrir fólk á flótta. Umræðan hefur verið talsvert villandi þar sem bæði hefur verið gefið í skyn og sagt leynt og ljóst að okkur beri skylda til að loka fólk inni sem sækir um vernd, eða það er skilningur margra í umræðunni og ég hef grun um að stundum sé það ekki óvart að sá misskilningur sé uppi. Staðreyndin er sú að okkur ber skylda til að hafa sérstök úrræði fyrir einstaklinga sem eru úrskurðaðir í varðhald í aðdraganda flutnings eftir að hafa fengið synjun. Þetta snýst um að hætta að loka þetta fólk inni í fangelsum eins og við gerum í dag. Þetta snýst ekki um það að við eigum að loka fólk á flótta meira inni heldur minna. Ætla mætti að það myndi hafa í för með sér einhvers konar sparnað þar sem það væri þá hægt að nýta fangelsin með allri þeirri öryggisgæslu sem þar er til þess sem þau eru ætluð og gera sérstakt búsetuúrræði fyrir einstaklinga sem nú eru vistaðir í fangelsum í aðdraganda flutnings.

Mig langar til þess að spyrja hæstv. ráðherra annars vegar hvort hún telji fjármunum vel varið í að búa til fangelsi fyrir einstaklinga sem ekkert bendir til að þörf sé á að loka inni, verja í það gríðarlega miklum fjármunum sem mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra hvort liggi fyrir hversu miklir séu, hvort þetta sé fjármagnað eða hvort þessi orðræða og þessar fyrirætlanir séu fyrst og fremst þáttur í þeirri hundaflautu sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að blása í undanfarin misseri, með þeim skilaboðum að fólk á flótta sé hættulegt okkar samfélagi.