155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:43]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Komið hefur fram að það er ásetningur minn að leggja fram frumvarp um brottfararúrræði. Það úrræði verður með takmörkunum, það er ljóst. Þar verður takmarkað ferðafrelsi fólks. Ég hef sagt það hér í dag í fyrra svari mínu að það er hluti af skuldbindingum okkar innan Schengen-samstarfsins að koma upp lokuðu brottfararúrræði þar sem við tryggjum að fólki sem hefur verið synjað um dvöl hér á landi eða vernd ber að yfirgefa Schengen-svæðið. Það er gríðarlega mikilvægt að við undirgöngumst þær skuldbindingar sem þessi samningur veitir okkur.

Hv. þingmaður spyr hvort þessum fjármunum sé vel varið. Já, ég tel að svo sé. Við höfum séð alveg gríðarlegan kostnað í kerfinu í þessum málaflokki og við áætlum að kostnaður við brottfararúrræði sé um 650 millj. kr. á ári. Þeim kostnaði á að mæta með sparnaði sem fylgir fækkun umsókna hér á landi og lækkun kostnaðar á öðrum stöðum í kerfinu.