fjárlög 2025.
Forseti. Frumvarp það sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur gert drög að og það sem við höfum fengið að sjá af þessum fyrirætlunum virðist gera ráð fyrir því að fólk sé lokað inni jafnvel í aðdraganda synjunar. Mig langar til að leiðrétta það og mun gera það eins oft og þörf krefur, hér úr þessum stóli og annars staðar, að okkur ber engin skylda samkvæmt neinum reglum í Schengen eða annars staðar til þess að loka fólk inni sem ekki er búið að úrskurða í sérstakt varðhald í aðdraganda flutnings, það er það eina. Okkur ber engin skylda til að loka fólk á flótta inni í aðdraganda ákvörðunar, engin. Er það rétt skilið, sem mér fannst koma fram í máli hæstv. dómsmálaráðherra, að þetta sé misskilningur, að það standi eingöngu til að gera þetta brottvísunarúrræði fyrir þá einstaklinga sem núna eru vistaðir í fangelsum eða stendur til að stækka þann hóp sem lokaður er inni í aðdraganda brottvísunar?
Hin spurningin sem mig langaði til að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra (Forseti hringir.) varðar það hvort til standi að loka börn inni í þessum fangelsum.