fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurningu sem beint er til mín. Ég tek undir með hv. þingmanni að það sem ég er að leggja til er mannúðlegra úrræði heldur en núverandi ástand. Það sem skiptir öllu máli og er lykilatriði er að það sé trúverðugleiki í kerfinu og það skiptir máli að við séum að vinna með sambærilegum hætti og löndin í kringum okkur. Hér erum við ekki að tala um fangelsi. Það er verið að skoða þetta allt, það eru möguleikar á opnum úrræðum, fjölskylduúrræðum o.s.frv. og það hefur komið skýrt fram í þeim frumvarpsdrögum sem ég hef lagt í samráðsgátt að börn verða ekki vistuð í þessu úrræði. Við erum heldur ekki að tala um að við ætlum að loka allt fólk inni. Við erum að tala um einstaklinga sem neita allri samvinnu við íslensk stjórnvöld, (Forseti hringir.) t.d. að fólk sem neitar að yfirgefa landið og er búið að missa þjónustu (Forseti hringir.) fari í þetta úrræði frekar en að það sé hjá Rauða krossinum.