155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:48]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Það eru fjölmörg mikilvæg verkefni sem heyra undir matvælaráðuneytið, allt frá því að auka sjálfbærni í íslenskum landbúnaði, efla eftirlit og umgjörð sjávarútvegs og fiskeldis, styðja við nýsköpun og rannsóknir og vernda land okkar og náttúru. Þessi verkefni eru ekki aðeins verkefni dagsins í dag heldur verkefni til framtíðar, vörður á leiðinni til betra samfélags þar sem áhersla er lögð á grænna og sjálfbærara samfélag.

Nú í sumar var í fyrsta sinn veittur sérstakur stuðningur vegna kornræktar. Það er liður í að efla fæðuöryggi og mun skipta sköpum á komandi árum. Í frumvarpinu er um að ræða 180 millj. kr. til aukinnar kornframleiðslu og skiptist það á milli verkefna til fjárfestingarstuðnings og innviðauppbyggingar í kornrækt annars vegar og svo beins stuðnings við kornframleiðslu hins vegar og það er í samræmi við aðgerðaáætlun Landbúnaðarháskóla Íslands um aukna kornrækt sem heitir Bleikir akrar.

Áframhaldandi vinna og stuðningur verður vegna innleiðingar verndandi arfgerðar gegn riðuveiki í íslenska sauðfjárstofninum og eins og ég hef áður rætt legg ég mikla áherslu á dýravelferð og dýraheilbrigði og er hafin heildstæð stefnumótun í þeim efnum og endurskoðun viðeigandi laga.

Unnið er að verkefnaáætlun fyrir söfnunarkerfi dýraleifa, en eins og fram kom nú síðla sumars er að fara af stað uppbygging líforkuvers á Dysnesi við Eyjafjörð. Það er mikið framfaraskref í þeim efnum og liður í innleiðingu aðgerða í landbúnaði samkvæmt endurskoðaðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.

Einnig verður unnið að eflingu rannsókna og aukinni þekkingu á áhrifum íslensks landbúnaðar á loftslag og stutt verður við þróun gæðaviðmiða við framleiðslu vottaðra kolefniseininga. Þá verður unnið að eflingu lífrænnar framleiðslu samkvæmt fyrirliggjandi aðgerðaáætlun en meginmarkmið stjórnvalda er að auka hlut lífrænnar matvælaframleiðslu á Íslandi.

Fjárveiting til rannsókna í þágu landbúnaðar er ráðgerð tæplega 325 millj. kr. og hækkar um 110 milljónir frá gildandi fjárlögum að meðtöldum 12 millj. kr. verðlagsbótum. Sömuleiðis er gert ráð fyrir 100 millj. kr. framlagi til byggingar jarðræktarmiðstöðvar Landbúnaðarháskólans, en ráðgert er að hefjast handa innan skamms.

Loks hækkar stuðningur til bænda vegna búvörusamninga um tæplega 600 milljónir frá fjárlögunum í ár. Með þessum aðgerðum stuðlum við að auknu sjálfstæði í matvælaframleiðslu og tryggjum að heilnæm og örugg matvæli séu framleidd á Íslandi. Í bráð og lengd er það markmiðið, sér í lagi á tímum sem þessum þar sem fjöldi óvissuþátta eins og heimsfaraldrar og stríðsátök setja strik í reikninginn, af því að matvælaöryggi skiptir jú sköpum fyrir almenning í landinu.

Virðulegi forseti. Mikil þörf hefur verið á að auka eftirlit, rannsóknir og vöktun á sviði lagareldis. Sjókvíaeldi hefur verið í miklum vexti undanfarin fimm ár og er mikilvægt að styrkja vöktun og rannsóknir vegna samspils lífríkis við sjókvíaeldið. Í frumvarpi þessu er lagt til 50 millj. kr. framlag til að auka eftirlit Matvælastofnunar með sjókvíaeldi og tryggja fullnægjandi eftirlit með skráningu og innra eftirliti sjókvíaeldisfyrirtækja, m.a. með því að fjölga starfsfólki. Það kemur til viðbótar 126 millj. kr. framlagi sem veitt var í fjárlögum á þessu ári til þess verkefnis. Að auki er 50 millj. kr. framlag til Hafrannsóknastofnunar sem ætlað er að styrkja verkefni þeirra á sviði fiskeldis. Þá er áætlað að tæplega 50 millj. kr. renni til fiskeldissjóðs í því augnamiði að styðja enn frekari uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum.

Sömuleiðis er 20 millj. kr. framlag til að fjölga stöðugildum eftirlitsmanna Fiskistofu, en fyrir liggur að styrkja þarf veiðieftirlitið sem komið er að þolmörkum. Í gildandi fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að framlagið hækki á komandi árum og verði nærri 100 millj. kr. frá og með árinu 2026.

Þá er lagt til að 230 millj. kr. renni til eflingar hafrannsókna hjá Hafrannsóknastofnun. Kemur sú hækkun til viðbótar 180 millj. kr. framlagi til verkefnisins í núgildandi fjárlögum. Loks renna 144 milljónir til tækjakaupa í nýtt hafrannsóknaskip. Hér er meginmarkmiðið einfalt, að efla rannsóknir á umhverfisáhrifum fiskeldis og styrkja eftirlit með fiskveiðum en auk eftirlits á sviði fiskveiða erum við að skilgreina verndarsvæði í hafi á grunni rannsókna og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar um vernd 30% lögsögu landsins. Eftir þessu hefur verið beðið enda mikið framfaramál fyrir land og þjóð.

Einnig er lögð áhersla á áframhaldandi innleiðingu aðgerða í sjávarútvegi samkvæmt endurskoðaðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum en það felst fyrst og fremst í að draga úr losun kolefnis við fiskveiðar, mati á árangri ívilnana til smábáta og eflingu hafrannsókna. Að tryggja sjálfbærni og gæði sjávarafurða hefur bein áhrif á fæðuöryggi landsins, atvinnu í sjávarbyggðum og náttúruvernd. Það er hagur okkar allra að lágmarka umhverfisáhrif af nýtingu auðlinda sjávar og stuðla að verndun vistkerfa hafsins.

Virðulegi forseti. Ég sé að tími minn er búinn en ég átti algerlega eftir að fara yfir veiðigjöldin. Ég fæ nú líklega spurningu um það.