fjárlög 2025.
Frú forseti. Það rétt hjá hæstv. ráðherra að hún fær spurningu um veiðigjöldin, því að eitt af því sem veldur ósætti um nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar er að veiðigjöldin sem útgerðir greiða fyrir að fá að nýta sér þjóðarauðlindina eru allt of lág. Þjóðin fær ekki réttlátan hlut í arðinum. Indriði H. Þorláksson hefur rannsakað og skrifað um auðlindarentuna og velt upp spurningum um hver sé raunveruleg afkoma fyrirtækja sem nýta fiskveiðiauðlindir landsins. Hann hefur dregið fram hver þáttur auðlindarinnar er, þ.e. auðlindarentan og hvort greitt sé eðlilegt gjald fyrir aðgang að auðlindinni en auðlindarentan fellur þeim í skaut sem fær nýtingarréttinn eins og hæstv. ráðherra þekkir. Indriði hefur tekið saman ýmsar staðreyndir, m.a. um auðlindarentuna á árunum 2010–2020. Þar kemur fram að auðlindarentan var á þessum áratug samtals 519 milljarðar króna eða um 47 milljarðar að meðaltali á ári. Auðlindarentan er því óumdeilanlega mjög mikil í sjávarútvegi á Íslandi.
Í fjármálaáætlun var því gefið undir fótinn að það ætti að hækka veiðigjöldin. Svo kemur fjárlagafrumvarpið og þar segir að það eigi sannarlega að gera það en aðeins um 2 milljarða kr. og það eigi að gera með því að breyta eða hækka veiðigjald á uppsjávarfisktegundir sem allir viðurkenna að var of lágt og þess vegna var álag en það verður fellt niður. Síðan er lagt til að fella niður heimild laganna um að veiðigjald sé rekstrarkostnaður sem draga megi frá tekjuskattsstofni samkvæmt ákvæðum tekjuskattslaga (Forseti hringir.) og það er auðvitað alveg fráleitt að útgerðir séu að borga veiðigjald til ríkissjóðs (Forseti hringir.) sem þær fá síðan aftur sem afslátt. (Forseti hringir.) Ég vil bara spyrja hæstv. ráðherra: Er það rétt skilið hjá mér að þetta sé breytingin sem verður á veiðigjaldinu á árinu 2025?
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna þingmenn á að virða ræðutíma.)