155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:56]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Já, þetta er rétt og nú er í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp þessa efnis þar sem, eins og hv. þingmaður fór yfir, veiðigjald á uppsjávartegundirnar, loðnuna, kolmunnann og makrílinn, verður 45%, sem nú er 33%, og álagið verður fellt niður upp að 10% á þessar tegundir og já, það á að fella brott heimild til að draga veiðigjald frá tekjuskattsstofni. Þetta leiðir af sér þessar fjárhæðir sem hafa verið nefndar. Við þekkjum að það árar mismunandi og ég hef alveg áhyggjur af því og lýsi því hér yfir að í ljósi þess að makríllinn hefur ekki gefið, og það eru ekki komnar niðurstöður um loðnu, getum við allt eins átt von á því að fá minna í kassann en við erum að gera ráð fyrir, af því að eins og hv. þingmaður þekkir líka, þ.e. ef við horfum þá fram í tímann til fjármálaáætlunar, eins og við þekkjum þá erum við að reikna okkur alltaf tvö ár aftur í tímann þannig að veiðigjöldin byggjast auðvitað á því sem kom á land fyrir tveimur árum síðan og hefur reynst mismunandi gott, hefur mér fundist, að leggja mat á það hversu mikið ríkissjóður hefur út úr veiðigjöldum á hverjum tíma.

Ég hyggst ekki gera aðrar breytingar, eins og hv. þingmaður var kannski að kalla eftir, heldur en þessar á því frumvarpi sem nú er, eins og ég segi, í samráðsgátt. Okkur getur alveg greint á eða verið sammála um það hvort við viljum taka meira inn af útgerðinni eða minna eftir atvikum. Að þessu sinni alla vega er það þetta sem ég hyggst leggja til. Ég er þegar farin að fá heldur hörð viðbrögð frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi við þessari breytingu en ég vona sannarlega að ég geti komið henni hér inn til þingsins þannig að það geti tekist á um og tekist á við hana.